
15 nóv Fimleikadeild Selfoss leitar að framkvæmdastjóra

Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss leitar að framkvæmdastjóra í 75% starfshlutfall. Starfið er krefjandi, skemmtilegt og fjölbreytt. Hjá deildinni er öflugt barna- , unglinga- og afreksstarf auk þess sem starfandi er fimleikaakademía við Fjölbrautaskóla Suðurlands. Hjá deildinni starfar sterkt teymi deildarstjóra, þjálfara, iðkenda og sjálfboðaliða.
Starfssvið:
• Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagslegu skipulagi deildarinnar
• Samskipti við foreldra, þjálfara og fimleikahreyfinguna
• Starfsmannastjórnun
• Mótun stefnu deildarinnar í samráði við yfirþjálfara og deildarstjóra
• Skipulag viðburða, markaðsmál, kynningar og styrkumsóknir
• Samskipti við sveitarfélagið og önnur félög innan íþróttahreyfingarinnar, styrktaraðila og fjölmiðla
Hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
• Þekking og reynsla af rekstrarstjórnun og fjárhagsáætlanagerð
• Framúrskarandi samskiptahæfileikar
• Að vera skipulagður, lausnamiðaður, með leiðtogahæfileika og gott frumkvæði
• Áhugi á íþróttum og þekking á fimleikum er kostur
Viðkomandi þarf að geta hafið störf í janúar. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Garðarsdóttir, formaður stjórnar Fimleikadeildar Umf. Selfoss í síma 895-5767. Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 29. nóvember á netfangið ingagardarsd@gmail.com.