
20 apr Framkvæmdastjóri í 50% stöðuhlutfall

Fimleikadeild Ungmennafélags Selfoss leitar að framkvæmdastjóra í 50% stöðuhlutfall
Starfið er krefjandi, skemmtilegt og fjölbreytt. Hjá deildinni er öflugt barna-, unglinga- og afreksstarf og þar starfar sterkt teymi þjálfara, iðkenda og sjálfboðaliða.
Helstu starfssvið:
– Ábyrgð á daglegum rekstri og fjárhagslegu skipulagi deildarinnar.
– Samskipti við iðkendur, þjálfara og fimleikahreyfinguna
– Starfsmannastjórnun
– Mótun stefnu deildarinnar
– Skipulag viðburða, markaðsmál, kynningar og styrkumsóknir
– Samskipti við sveitarfélagið og önnur félög innan íþróttahreyfingarinnar, styrktaraðila og fjölmiðla
Hæfniskröfur:
– Háskólamenntun sem nýtist í starfi er æskileg
– Þekking og reynsla af rekstrarstjórnun og fjárhagsáætlanagerð
– Framúrskarandi samskiptahæfileikar
– Skipulagður, lausnamiðaður, frumkvæði og leiðtogahæfileikar
– Þekking á hópfimleikum er kostur
Viðkomandi þarf að geta hafið störf 1. ágúst, ákjósanlegt er að geta komið eitthvað til starfa í júní til að setja sig inn í starfið.
Umsókn ásamt ferilskrá sendist fyrir 10. maí á stjorn.fimleikar.selfoss@gmail.com
Nánari upplýsingar veitir Þóra Þórarinsdóttir, formaður stjórnar Fimleikadeildar Umf Selfoss í síma 868-4023.
Stjórn Fimleikadeildar Umf. Selfoss