Í íþróttahúsunum okkar er:
Þessar reglur taka gildi frá og með 1. maí 2008
Bragi Bjarnason, íþrótta- og tómstundafulltrúi
Verklagsreglur um afnot félagasamtaka og fyrirtækja af skólahúsnæði í eigu Sveitarfélagsins Árborgar.
Eftirfarandi verklagsreglur eru til að auðvelda og greina skilmerkilega frá hvað sé á ábyrgð þeirra aðila sem fá afnot af skólahúsnæði í eigu Sveitarfélagsins Árborgar.
1. Ábyrgðaraðili þessa sem óskar eftir afnotum af skólahúsnæði hafi samband við umsjónarmann skólahúsnæðis minnst 14 dögum fyrir áætlaða notkun.
2. Ábyrgðaraaðili mælir sér mót við umsjónarmann nokkrum dögum fyrir notkun til að skoða aðstæður og fá upplýsingar um þrif, umgengisreglur hússins, fjölda gæslumanna sem þarf í húsinu miðað við tegund afnota og áætlaðan fjölda sem og annað sem að húsnæðinu snýr.
3. Ábyrgðaraðili sér til þess að húsinu sé skilað í sama ástandi og tekið var við því. Umsjónarmaður metur skilaástand með ábyrgðaraðila.
4. Ef umsjónarmaður metur þrif á húsinu óásættanleg getur hann farið fram á að ábyrgðaraðili bæti úr því eða greiði fyrir aukaþrif.
5. Allar skemmdir á húsnæði eða eigum þess skal tilkynna til umsjónarmanns sem fyrst.
6. Þeir aðilar sem fá skólahúsnæðið til afnota bera ábyrgð á skemmdum sem hljótast af notkun þeirra og ber að bæta þær að fullu.
Bent er á að takmarka má þrif verulega ef farið er úr skóm í forstofum en þá getur verið nægjanlegt að sópa yfir gólf í stað þess að þurf að skúra yfir líka.
Sveitarfélagið sér til þess að til sé auka klósettpappír og handþurrkur í skólahúsnæðunum en notendur þurfa að fylla á sjálfir.
– Í Vallaskóla eru aukabirgðir í íþróttahúsinu.
Umsjónarmenn við grunnskóla Árborgar eru:
Vallaskóli – Guðmundur Baldursson, s: 899-5420
Sunnulækjarskóli – Jóhann Hannes Jónsson, s: 896-3204
Barnaskólinn á Eyrarbakka og Stokkseyri – Ólafur Auðunsson, s: 862-1916