
20 feb Fjóla Signý og Hreinn Heiðar bikarmeistarar í hástökki

Sjötta Bikarkeppni FRÍ í frjálsum íþróttum innanhúss fór fram í Laugardalshöllinni laugardaginn 18. febrúar s.l. HSK sendi sitt sterkasta lið til keppni sem náði góðum árangri. Það samanstóð af ungum einstaklingum sem þreyttu frumraun sína í bikarkeppni sem og reyndum jöxlum sem alltaf standa fyrir sínu. Tvö gull, tvö silfur og fimm brons komu í hús, miðað við eitt gull, átta silfur og fimm brons í fyrra, ásamt því að stór hluti keppenda HSK-liðsins bætti sig, ýmist persónulega eða náði sínum besta árangri á keppnistímabilinu. Í kjölfar þessara bætinga litu dagsins ljós fimm ný HSK-met. Metin voru reyndar mun fleiri í fyrra en á það ber að líta að í ár voru nokkrir lykilmenn liðsins meiddir. Það var sérstaklega gaman að sjá þá samheldn og baráttu sem einkennir ávallt HSK-liðið í Bikarkeppnum.
Fjóla Signý Hannesdóttir Selfossi, fyrirliði kvenna liðsins, stóð sig vel að vanda. Hún stökk allra kvenna hæst í hástökki, 1,66 m. Hún varð svo fyrir því óláni að þjófstarta í 400 m hlaupinu þar sem hún átti góða möguleika á sigri.
Hreinn Heiðar Jóhannsson Laugdælum var enginn eftirbátur Fjólu í að halda merki hástökkvara í HSK á lofti. Hann jafnaði sinn persónulega besta árangur í hástökki karla og vippaði sér yfir 1,95 m og sigraði. Hreinn hljóp svo mjög gott 60 m grindahlaup og bætti sig úr 9,26 sek í 9,05 sek og setti í leiðinni HSK-met í flokki 20-22 ára pilta. Hreinn varð fjórði í hlaupinu.
Eva Lind Elíasdóttir Þór var drjúg fyrir HSK-liðið að vanda. Hún tók silfur í 60 m grindahlaupinu er hún hljóp á 9,33 sek og bætti persóulegan árangur sinn um fjögur brot. Eva Lind varð síðan þriðja í 200 m hlaupinu nánast á sínum besta tíma 26,80 sek.
Kristinn Þór Kristinsson Samhygð hljóp vel útfærð millivegalendarhlaup karla en Kristinn er mjög mikilvægur fyrir liðið. Hann kom þriðji í mark í 800m. hlaupinu, sjónarmunn frá silfrinu á sínum öðrum besta tíma frá upphafi 1:54,81mín., í 1500m. hlaupinu varð hann örugglega í öðru sæti í taktísku hlaupi. Kúluvarp hefur löngum verið sterkt hjá HSK og á því varð enginn breyting nú. Ólafur Guðmundsson Laugdælum varð þriðji í kúluvarpi karla með sitt lengsta kast í ár, 13,53m. og Ágústa Tryggvadóttir Selfoss tók sama sæti í kúluvarpi kvenna. En hún var að keppa í fyrsta sinn í tvö ár eftir barnsburðarfrí, kastaði 11,16m. Í þrístökki karla varð Bjarni Már Ólafsson Vöku þriðji með 13,14m.
Fjögur HSK met til viðbótar voru sett á mótinu. Sólveig Helga Guðjónsdóttir Selfoss bætti sig um tvær sek. í 800m. hlaupinu, tíminn 2:27,03mín. og HSK met í 16 -17ára flokki og 18-19 ára flokki stúlkna, gamla metið átti Eva Lind Elíasdóttir Þór 2:28,86 mín. Dagný Lísa Davíðsdóttir sem keppir einnig fyrir Selfoss og er aðeins 15 ára, hljóp gott 1500m. hlaup í fjarveru Agnesar Erlingsdóttur, sem var meidd. Hún setti HSK met í í flokki 15 ára og 16-17 ára hljóp á 5:25,82 mín. og varð fimmta. Gamla metið átti Borghildur Valgeirsdóttir 5:26,2 mín. Þá hljóp Hermann Snorri Hoffriz 60m. hlaupið í stað Haraldar Einarsson sem einnig var meiddur og leysti það vel af hendi, bætti sinn persónulega árangur og fór í fyrsta sinn undir átta sekúndurnar, tíminn 7,99s.
Samstaða, jákvæðni og góður andi einkenndi HSK liðið. Mottóið að maður kemur í manns stað var haft í fyrirrúmi. Varmenn voru ávallt tilbúnir og leystu sínar greinar með sóma.
Í heildarstigakeppninni varð HSK í 5. sæti af sex liðum með 68 stig. FH sigraði eftir hörkukeppni við ÍR-A með 105 stig og endurheimti titilinn, en ÍR- A hafði unnið þrjú ár í röð. Karlaliðið lið HSK varð í 4. sæti og kvennaliðið í því 5.
Annars varð árangur keppenda HSK eftirfarandi:
Fjóla Signý Hannesdóttir | Selfoss | Hástökk | 1,66 m | nr. 1 | |
Hreinn Heiðar Jóhannsson | Laugdælir | Hástökk | 1,95 m | pers.best | nr. 1 |
Eva Lind Elíasdóttir | Þór | 60 m gr.hlaup | 9,33 sek | pers.best | nr. 2 |
Hreinn Heiðar Jóhannsson | Laugdælir | 60 m gr.hlaup | 9,05 sek | pers.best | nr. 4 |
Sólveig Helga Guðjónsdóttir | Selfoss | 800 m hlaup | 2:27,03 mín | HSK-met | nr. 6 |
Kristinn Þór Kristinsson | Samhygð | 800 m hlaup | 1;54,81 mín | HSK-met | nr. 3 |
Dagný Lísa Davíðsdóttir | Selfoss | 1500 m hlaup | 5:25,82 mín | HSK-met | nr. 5 |
Kristinn Þór Kristinsson | Samhygð | 1500 m hlaup | 4:13,26 mín | ársbest | nr. 2 |
Eva Lind Elíasdóttir | Þór | 200 m hlaup | 26,80 sek | nr. 2 | |
Baldvinn Ari Eiríksson | Selfoss | 200 m hlaup | 26,63 sek | ársbest | nr. 5 |
Ágústa Tryggvadóttir | Selfoss | Kúluvarp | 11,16 m | ársbest | nr. 3 |
Ólafur Guðmundsson | Laugdælir | Kúluvarp | 13,53 m | ársbest | nr. 3 |
Fjóla Signý Hannesdóttir | Selfoss | 400 m hlaup | Óg. | ||
Dagur Fannar Magnússon | Selfoss | 400 m hlaup | 63,20 sek | ársbest | nr. 4 |
Elinborg Anna Jóhannsdóttir | Laugdælir | Þrístökk | 10,18 m | nr. 5 | |
Bjarni Már Ólafsson | Vaka | Þrístökk | 13,14 m | nr. 3 | |
Sólveig Helga Guðjónsdóttir | Selfoss | 60 m hlaup | 8,40 sek | ársbest | nr. 6 |
Hermann Snorri Hoffriz | Selfoss | 60 m hlaup | 7,99 sek | pers.best | nr. 6 |
Elinborg Anna Jóhannsdóttir | Laugdælir | Langstökk | 4,71 m | nr. 6 | |
Bjarni Már Ólafsson | Vaka | Langstökk | 6,08 m | nr. 4 | |
Theódóra Jóna Guðnadóttir | Dímon | Stangarstökk | 2,40 m | ársbest | nr. 4 |
Ólafur Guðmundsson | Laugdælir | Stangarstökk | 2,20 m | nr. 5 | |
4×400 m boðhlaup | * | 4:11,52 mín | ársbest | nr. 5 | |
4×400 m boðhlaup | ** | 3:57,63 mín | ársbest | nr. 6 |
* Sólveig Helga, Kristín Rut, Eva Lind og Fjóla Signý.
** Baldvin Ari, Hreinn Heiðar, Hermann Snorri og Kristinn Þór.
Ólafur Guðmundsson, verkefnisstjóri HSK í frjálsum.