
20 maí Lokahóf yngri flokka á fimmtudag

Lokahóf yngri flokka Handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið í íþróttahúsi Vallaskóla fimmtudaginn 21. maí og stendur frá klukkan 17-18.
Á dagskrá er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla.
Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta með krökkunum.