
22 maí Lokahóf yngri flokka í handbolta

Lokahóf yngri flokka handknattleiksdeildar Umf. Selfoss verður haldið föstudaginn 23. maí í íþróttahúsi Vallaskóla frá kl. 17-18.
Á dagskrá er verðlaunaafhending, myndataka og grillveisla. Foreldrar og forráðamenn eru eindregið hvattir til að mæta og samgleðjast með krökkunum.