21 maí Selfoss með næst besta heildarárangur félaga
Yngri flokkar handknattleiksdeildar Selfoss náðu næst besta heildarárangri keppnisliða á Íslandsmótinu í vetur. Síðustu 5-7 ár hefur Selfoss verið í röð allra fremstu liða. Í fyrra var Selfoss með besta samanlagðan heildarárangur en nú skaust Fram í efsta sætið. Árin tvö þar á undan varð Selfoss í öðru sæti á eftir FH.
Röð efstu félaga keppnistímabilið 2011-2012 var ftirfarandi:
1 | Fram |
2 | Selfoss |
3 | FH |
4 | Grótta |
5 | Fylkir |
6 | HK |
7 | Haukar |
8 | ÍBV |
Þessi árangur er afrakstur mikillar vinnu þjálfara og foreldra. Umfang deildarinnar hefur aukist ár frá ári og voru til að mynda leiknir 575 leikir á vegum deildarinnar í vetur auk Landsbankamótsins í 7. flokki drengja og stúlkna þar sem leiknir voru 342 leikir.
Stelpurnar í 4. flokki eru á leið á Partille Cup í Gautaborg í sumar en mótið er stærsta handboltamót í heiminum með um 20.000 keppendur alls staðar að úr heiminum. Á milli jóla og nýárs fóru 4. flokkur kala og kvenna á Norden Cup sem er óopinbert Norðurlandamót bestu félagsliða Norðurlanda.
Hrafnhildur Hanna Þrastardóttir ein efnilegasta handboltastelpa landsins. Afrakstur öflugs yngriflokkastarfs.