
28 maí Leikja- og júdónámskeið Selfoss

Júdódeild Selfoss býður í sumar upp á fjölbreytt námskeið þar sem blandað er saman skemmtilegum leikjum, styrktaræfingum og farið yfir grunnatriði í júdó.
Júdó eykur þol, fimi, styrk og eflir sjálfstraust. Hentar bæði fyrir byrjendur og þá sem hafa verið í júdó áður, bæði stráka og stelpur.
Hvert námskeið eru fjórir dagar, frá mánudegi til fimmtudags. Námskeiðið fer fram í júdósalnum í Sandvíkurskóla (beint á móti Sundhöll Selfoss). Vikunámskeið kostar kr. 4.000.
Þjálfari Einar Ottó Antonsson íþróttafræðingur og 1 kyu.
Boðið er upp á þrjá mismunandi aldurshópa
Börn fædd 2014-2015
Mánudaga-fimmtudaga kl. 8:00-9:00
Börn fædd 2011-2013
Mánudaga-fimmtudaga kl. 9:15-10:15
Börn fædd 2008-2010
Mánudaga-fimmtudaga kl. 10:30-11:30
Boðið er upp á þrjár mismunandi dagsetningar
1. námskeið – 21. júní – 24. júní
2. námskeið – 28. júní – 1. júlí
3. námskeið – 5. júlí – 8. júlí
Skráning og nánari upplýsingar á judoselfoss@gmail.com eða í síma 862 2201.