
29 júl Guðmunda Brynja í úrvalsliði fyrri umferðar

Guðmunda Brynja Óladóttir fyrirliði Selfoss var valin í úrsvalslið fyrri umferðar Pepsi deildarinnar í knattspyrnu en valið var kynnt húsakynnum Ölgerðarinnar í dag. Ásamt Guðmundu Brynju fengu þrír leikmenn toppliðs Stjörnunnar þ.e. Danka Podovac, Glódís Perla Viggósdóttir og Harpa Þorsteinsdóttir atkvæði í lið umferðanna frá öllum í valnefndinni. Glæsilegur árangur hjá Gummu og hún svo sannarlega vel að viðurkenningunni komin.
Pepsi deildin hefst að nýju eftir nokkuð hlé, þriðjudaginn 30. júlí en þá er heil umferð á dagskrá. Selfoss tekur á móti Þrótti og hefst leikurinn kl. 19:15 á Selfossvelli.
Harpa Þorsteinsdóttir úr Stjörnunni var valin besti leikmaður umferðanna og þjálfari hennar, Þorlákur Árnason var valinn besti þjálfarinn.
Þá var Geir Eggertsson valinn besti dómari umferðanna og stuðningsmenn HK/Víkings voru valdir stuðningsmenn umferða 1 – 9 í Pepsi deildinni.
Lið umferðanna var einnig valið og er það þannig skipað:
Markvörður: Sandra Sigurðardóttir – Stjarnan Aðrir leikmenn: Anna Björk Kristjánsdóttir – Stjarnan Anna María Baldursdóttir – Stjarnan Ashlee Hincks – FH Danka Podovac – Stjarnan Dóra María Lárusdóttir – Valur Elín Metta Jensen – Valur Glódís Perla Viggósdóttir – Stjarnan Guðmunda Brynja Óladóttir – Selfoss Harpa Þorsteinsdóttir – Stjarnan Rakel Hönnudóttir – Breiðablik |