
18 okt Heimilt að stunda íþróttir á Selfossi
Posted at 22:53h
in Fimleikar, Fréttir, Frjálsíþróttir, Handbolti, Júdó, Knattspyrna, Lyftingar, Mótokross, Rafíþróttir, Sund, Taekwondo

Þrátt fyrir að töluverðar breytingar megi finna í nýrri reglugerð heilbrigðisráðherra um takmarkanir á íþróttastarfi hafa þær ekki áhrif á íþróttastarf á Selfossi. Ljóst er að æfingar hjá Umf. Selfoss geta farið fram með hefðbundnum hætti.
Ný reglugerð tekur gildi þriðjudaginn 20. október og verður að óbreyttu í gildi til 10. nóvember.