
28 maí Nýr og glæsilegur frístundavefur Árborgar
Posted at 08:24h
in Fimleikar, Fréttir, Frjálsíþróttir, Handbolti, Júdó, Knattspyrna, Mótokross, Rafíþróttir, Sund, Taekwondo

Á vefnum eru allar helstu upplýsingar um námskeið og afþreyingu í sveitarfélaginu og nágrenni þess í sumar en markmiðið er að vefurinn muni allt árið birta upplýsingar um frístundastarf og afþreyingarmöguleika í sveitarfélaginu fyrir alla aldurshópa. Á vefnum eiga íbúar að geta fundið allar upplýsingar á einum stað.
Undir hverju námskeiði á vefnum eru upplýsingar um hvernig hægt er að nálgast nánari upplýsingar og skrá sig á námskeið.
Frístundavefur Árborgar – slóðin er www.fristundir.arborg.is.
Ef þú ert með námskeið í gangi þá endilega sendu inn upplýsingar svo hægt sé að bæta þeim við inn á frístundavef Árborgar. Upplýsingar skal senda á gunnars@arborg.is.