Fullorðinsfimleikar

Langar þig að komast í betra form, prófa fimleika og eiga geggjaða stund með góðum hópi? Þá eru fullorðinsfimleikarnir fyrir þig!

Á námskeiðinu leggjum við áherslu á:

Góðan félagsskap og mikla gleði
Þrek, styrk og liðleika
Auðveldar og skemmtilegar fimleikaæfingar
Fjölbreyttar æfingar við allra hæfi
Hvetjandi og afslappað andrúmsloft

Þú þarft enga reynslu af fimleikum – bara mæta eins og þú ert og vera tilbúin/n að prófa eitthvað skemmtilegt. Hver og einn tekur þátt á sínum hraða og æfingarnar eru lagaðar að mismunandi getu.

Þetta er fullkomið fyrir þig sem vilt hreyfa þig, hlæja, ögra þér aðeins og kynnast frábæru fólki í leiðinni.

Engin pressa. Engin krafa um heljarstökk. Bara hreyfing, stemning og næs! 

Skráðu þig og komdu með okkur í salinn – þú munt ekki sjá eftir því.

Skráning: www.abler.io/shop/umfs/fimleikar