Veislusalurinn í Tíbrá er til leigu fyrir veislur, fundi og viðburði. Salurinn er rúmgóður og vel búinn og tekur allt að 60 gesti í sæti.
Salnum fylgja borð og stólar, anddyri, tvö salerni og eldhús með grunnbúnaði.
Tíbrá hentar vel fyrir afmæli, fermingar, fundi, móttökur og aðra viðburði. Allt að 60 manns komast í sæti og kaffi fylgir fundaraðstöðu.
* Þrifagjald er innheimt ef starfsfólk gengur frá borðum og stólum eða ef frágangi er ábótavant.
Starfsmaður skal ávallt vera á svæðinu meðan leigutaki er í salnum.
Um helgar kl. 10:00 daginn sem salurinn er leigður. Virka daga frá kl. 16:00.
Næsta dag eigi síðar en kl. 10:00, nema um annað sé samið.
Viðburði skal lokið kl. 02:00 og allir farnir úr húsi kl. 02:30.
Greiða skal alla leigu fyrirfram með millifærslu.
Sendið kvittun á umfs@umfs.is og setjið nafn leigutaka í skýringu.
Salurinn er leigður í núverandi ástandi með þeim búnaði sem honum fylgir. Umsjónarmaður opnar, leiðbeinir og lokar.
Fyrir bókanir eða frekari upplýsingar um Veislusalinn í Tíbrá er hægt að hafa samband við skrifstofu Umf. Selfoss.