Okkar einstaki vinur, félagi og sjálfboðaliði, Árni Þór Grétarsson, lést í gær á Sjúkrahúsi Suðurlands eftir snarpa baráttu við illvígt krabbamein.
Árni Þór hefur mörg undanfarin ár verið öflugasti sjálfboðaliði og stuðningsmaður Handknattleiksdeildar Selfoss. Hann hefur um árabil verið sjálfboðaliði á öllum heimaleikjum allra meistaraflokka félagsins ásamt fjölda leikja og móta yngri flokka. Árni Þór var óþreytandi sjálfboðaliði þar sem hann sá meðal annars um samfélagsmiðla, myndatökur og var lykilmaður í SelfossTV auk þess að vera um árabil liðsstjóri, fararstjóri, bílstjóri og félagi yngri og eldri iðkenda deildarinnar í keppnisferðum bæði innanlands og utan. Með Árna Þór er genginn einstakur öðlingur sem Handknattleiksdeild Umf. Selfoss, allir iðkendur og sjálfboðaliðar deildarinnar þakka fyrir góða samveru og einstaka vináttu um leið og fjölskyldu hans eru færðar innilegar samúðarkveðjur.
Blessuð sé minning Árna Þórs Grétarssonar.