Einar Sverrisson aðstoðarþjálfari meistaraflokks karla

Handknattleiksdeild Umf. Selfoss hefur samið við Einar Sverrisson um að ganga inn í þjálfarateymi meistaraflokks karla fyrir komandi tímabil. Hann mun verða Erni Þrastarsyni til halds og trausts með meistaraflokkinn í vetur.

Einar Sverris þarf vart að kynna fyrir Sunnlensku handbolta áhugafólki, þó víðar væri leitað. Hann er leikjahæsti og markahæsti leikmaður Selfoss frá upphafi en hann lék 272 leiki og skoraði í þeim 1204 mörk. Það er ómetanlegt fyrir ungt lið Selfoss að fá þennan reynslubolta til að miðla sinni þekkingu.

Handknattleiksdeild Selfoss býður Einar hjartanlega velkominn í teymið og væntist mikils af hans innleggi.