Harpa Valey framlengir

Harpa Valey Gylfadóttir hefur skrifað undir nýjan samning við handknattleiksdeild Umf. Selfoss til tveggja ára.

Harpa kom á Selfoss fyrir þremur árum og hefur verið lykilleikmaður í liðinu allar götur síðan. Hún er virkilega öflug á báðum endum vallarins og býr yfir miklum hraða.

Handknattleiksdeild Selfoss er mjög ánægð með framlenginguna og spennt að fylgjast með Hörpu halda áfram að bæta sig í vínrauðu treyjunni.