Sif semur til tveggja ára

Varnarjaxlinn, Sif Atladóttir, hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við Selfoss.
Sif gekk í raðir Selfoss fyrir tímabilið frá sænska félaginu Kristianstad. Sif var síðan hluti af leikmannahópi íslenska landsliðsins sem spilaði á Evrópumeistaramótinu á Englandi fyrr í sumar.
,,Það er gott að vera á Selfossi. Vegferðin heldur áfram og ég hlakka til að halda áfram að vinna með liðinu að bæta okkar leik. Við höfum verið að taka stór skref í sumar og verður gaman að bæta í það á komandi ári,” sagði Sif.