Annað

Sögu- og minjanefnd Umf. Selfoss

Sendu inn myndir og skjöl úr sögu félagsins

Átt þú gamlar myndir, skjöl, mótaskrár, úrklippur eða annað efni tengt starfi Umf. Selfoss? Við viljum gjarnan varðveita sögu félagsins og safna saman efni sem annars gæti glatast.

Senda inn efni
Mikilvægt: Efni sem sent er inn birtist ekki sjálfkrafa á vefnum. Umf. Selfoss fer yfir allar sendingar áður en efni er varðveitt, flokkað eða birt opinberlega.

Hvað má senda inn?

Myndir

Gamlar ljósmyndir frá æfingum, mótum, ferðum, viðburðum, hópum, sjálfboðastarfi eða öðru starfi félagsins.

Skjöl

Fundargerðir, mótaskrár, úrklippur, bréf, dagskrár, gömul blöð eða önnur skjöl sem tengjast sögu félagsins.

Minningar

Upplýsingar um fólk, lið, árangur, deildir, viðburði eða söguleg augnablik sem mikilvægt er að varðveita.

Svona gengur ferlið fyrir sig

1

Fylltu út formið

Skráðu nafn, netfang, hvaða deild efnið tengist, tímabil og stutta lýsingu á því sem þú ert að senda inn.

2

Sendu inn myndir eða skjöl

Þú getur sent inn myndir, PDF-skjöl, Word-skjöl eða annað efni sem tengist sögu Umf. Selfoss.

3

Sögu- og minjanefnd fer yfir efnið

Efnið verður skoðað áður en það er varðveitt, flokkað eða birt opinberlega.

4

Við höfum samband ef þörf er á

Ef vantar frekari upplýsingar um efnið, tímabil, einstaklinga eða uppruna þess getur félagið haft samband við sendanda.

Gott að hafa í huga áður en þú sendir inn efni

Reyndu að skrá frá hvaða ári eða tímabili efnið er frá.
Skrifaðu hvaða deild eða starfsemi efnið tengist.
Segðu frá því hverjir eru á myndinni ef það er vitað.
Láttu vita hvaðan efnið kemur eða hver tók myndina.
Sendu inn efni í eins góðum gæðum og hægt er.
Efnið verður ekki birt opinberlega fyrr en það hefur verið yfirfarið.

Senda inn efni

Fylltu út formið hér fyrir neðan og bættu við myndum eða skjölum. Við förum yfir sendinguna og höfum samband ef þörf er á frekari upplýsingum.