Eric Máni og Alexander Adam valdir í landsliðið í motocrossi

MXoN Ernée
MXoN Ernée

Eric Máni Guðmundsson og Alexander Adam Kuc hafa verið valdir til að taka þátt í landsliðsverkefnum á vegum Mótorhjóla og snjósleðaíþróttasambandi Íslands

Eric Máni Guðmundsson var valin landslið Íslands fyrir MXoN en liðið skipa þeir Ingvar Sverrir Einarsson sem keppir í MX1, Eric Máni Guðmundsson sem keppir í MX2 og Tristan Berg Arason sem mun keppa í MX Open. Ungt og efnilegt lið, en Eric Máni og Ingvar Sverrir eru að taka þátt í annað skipti á MXoN.

Keppnin í ár fer fram 1.- 4. Október fer fram í Ernée í Frakklandi.

 

Alexander Adam Kuc var valin landslið Íslands fyrir Coupe de l'Avenir. Keppnin er haldin árlega í Belgíu fyrir ökumenn undir 21 árs, 15 þjóðir taka þátt árlega og má hver þjóð senda 3 lið skipuð 3 ökumönnum til keppni. Er þetta í þriðja skipti sem Ísland sendir þrjú fullskipuð lið Alexander Adam keppir í MX Open.

Keppnin fer fram 25.-27. september í Belgíu.

Framtíðin í íslensku motocrossi er sannarlega björt og verður gaman að fylgjast með ökumönnunum okkar keppa á meðal þeirra bestu.