Ánægjuvogin - Styrkur íþrótta í Tíbrá í dag kl. 17:00.

Í dag mánudaginn 4. febrúar kl. 17:00 munu UMFÍ og ÍSÍ standa í sameiningu fyrir fundi  í Tíbrá, Engjavegi 50, Selfossi. Þar mun Dr. Viðar Halldórsson, félagsfræðingur, m.a. ræða um hvort íþróttahreyfingin sé að standast áskoranir nútímasamfélags eða eingöngu þjálfa til árangurs. Viðar mun styðjast við niðurstöður rannsóknarinnar Ánægjuvogin sem Rannsókn og greining gerði fyrir UMFÍ og ÍSÍ. Könnunin var um stöðu íþróttastarfs, ánægju iðkenda, stöðu áfengis og tóbaksnotkunar og fleira meðal sambandsaðila í 8.-10. bekk.