Iðkendasamningar undirritaðir við 1. flokk og meistaraflokk

1. flokkur og meistaraflokkur við undirritun samningsins.
1. flokkur og meistaraflokkur við undirritun samningsins.

Fimleikadeild Selfoss hefur undirritað iðkendasamninga við iðkendur í 1. flokki og meistaraflokki. Það er mikið ánægjuefni fyrir deildina að geta boðið þessum flottu og metnaðarfullu iðkendum upp á slíka samninga og stutt við áframhaldandi uppbyggingu afreksstarfsins.

Við erum afar stolt af þessum hópi, sem leggur mikla vinnu í æfingar og framfarir og er góð fyrirmynd fyrir yngri iðkendur deildarinnar. Metnaðurinn, samheldnin og gleðin sem þau koma með inn í starfið eru dýrmæt og gefa okkur góða ástæðu til að horfa björtum augum til framtíðar.

Við óskum iðkendunum til hamingju með samningana og hlökkum til að fylgja þeim áfram í þeim verkefnum og áskorunum sem fram undan eru. Áfram Selfoss!

Fimleikadeild Selfoss er í samstarfi við Hótel Geysi, Bilverk BÁ, HSH þrif og flutninga og Íslandsbanka.