Leiðbeiningar fyrir Unimaze

Leiðbeiningar fyrir innsendingu reikninga í Unimaze

Umf. Selfoss

Reikningar í Unimaze

Reikningur eða greiðslubeiðni – skref fyrir skref

Byrjaðu hér umfs-billing.unimaze.com Hafðu reikninginn eða kvittunina við höndina.

1 Veldu rétta deild

Kaupandi er deildin sem greiðir. Veldu hana úr felliglugganum og ýttu á „Halda áfram“.

Ekkert deildaval?
Fáðu aðstoð hjá bókhaldi við að merkja rétta deild.

2 Þínar upplýsingar

Birgir er sá sem rukkar:
þú eða fyrirtækið þitt.

Kennitala · Nafn
Heimilisfang · Póstnúmer

VSK númer eða hakið við
„Ekki VSK skyldur rekstur“.

Netfang er valfrjálst, en mælt er með því.

3 Fylltu út reikninginn

Grunnupplýsingar

Sölureikningur nr.
Notaðu númerið af reikningnum. Við greiðslubeiðni án númers má skrifa skýringu, t.d. „Útlagt, bensín“.
Útgáfudagur reiknings
Dagsetning reikningsins. Við nýja greiðslubeiðni notaðu daginn í dag.
Gjalddagi / eindagi
Sami dagur hér: dagurinn sem óskað er eftir greiðslu. Hann má fyrst vera 5 dögum eftir innsendingu.
Tilvísun kaupanda
Skýring, t.d. „Ferð 26.09.“ Má vera sami texti og í „Sölureikningur nr.“.

Reikningslínur og viðhengi

Nafn er lýsing á því sem greiða á, ekki nafnið þitt.

Dæmi: ein kvittun

Endurgreiðsla – bensín

Fjöldi
1
Verð pr. einingu
8.000 kr.
Samtals
8.000 kr.

Fjöldi 1: einingarverðið er öll upphæðin.
Vörunr. má vera autt.

Ýttu á „Vista línu“.

Mundu viðhengið

Veldu „Bæta við viðhengi“ og hengdu við læsilega mynd eða skrá af reikningnum eða kvittuninni.

4 Veldu greiðsluhátt og sendu

Millifærsla: Greitt inn á bankareikning. Skráðu og yfirfarðu bankaupplýsingar.

Krafa: Greiðslubeiðni í netbanka kaupanda. Fylltu út reitina sem kerfið biður um.

Yfirfarðu áður en þú sendir

  • Rétt deild og réttar upplýsingar.
  • Dagsetningar og heildarupphæð.
  • Viðhengi og greiðsluupplýsingar.

Allt klárt? Sendu inn.