Frábær Guðjónsdagur um helgina

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Laugardaginn 4. febrúar sl. fór fram minningarmót í knattspyrnu í íþróttahúsunum Iðu og Vallaskóla á Selfossi. Um kvöldið var svo frábæru móti slúttað með mögnuðum dansleik í Hvíta Húsinu, svona ekta  ,,Guðjóns Style". Mótið er firma- og hópakeppni sem knattspyrnudeild Selfoss heldur til minningar um frábæran félaga og vin Guðjón Ægi Sigurjónsson, sem lést af slysförum í byrjun árs 2009, langt um aldur fram.

Alls tóku 24 fyrirtæki/hópar þátt í mótinu og langar okkur að þakka þeim kærlega fyrir þátttökuna og stuðninginn við knattspyrnudeild Selfoss. Það var Snyrtistofan Myrra sem bar sigur úr býtum í ár. Búningaverðlaunin fékk Stofan, en liðsmenn Stofunnar mættu til leiks í Jesúklæðum og allir léku þeir berfættir. Eftirtektaverðustu leikmenn mótsins voru þau frændsystkin Harpa Hlíf Guðjónsdóttir og Árni Leó Þórðarson, en hann sýndi frábæra takta í markvörslu á mótinu.

Guðjónsdagurinn, eins og við höfum ákveðið að kalla þennan viðburð, er orðinn árlegur og fastur punktur í viðburðadagatalinu og fer fram fyrstu helgina í febrúar ár hvert. Virkilega gaman var að sjá hve fyrirtækin/hóparnir lögðu mikið í búninga og alla umgjörð sína, sem eykur á skemmtanagildið og gleðina í kringum daginn.

Okkur langar einnig að þakka öllum styrktaraðilum mótsins og fjölskyldu Guðjóns fyrir að gera þetta mögulegt, en margir lögðu hönd á plóg til að gera þennan dag sem eftirminnilegastan.

Sérstakar þakkir fá:  Þórdís Erla og fjölskylda, Snyrtistofan Myrra, meistaraflokkar Selfoss karla og kvenna, fyrir þeirra framlag í mótinu, Guðjón Emilsson í Íþróttahúsinu Iðu, Bergur Sigurjónsson í Íþróttahúsi Vallaskóla, Björgvin Magnússon hjá Vífilfell, Rúnar hjá Mekka Wine and spirits, Einar Björnsson og Hvíta Húsið, LOTUS með Hermann Ólafsson í broddi fylkingar, Njörður Steinarsson, Adolf I. Bragason, Skúli Arason, Leifur Viðarsson, Herbert Viðarsson, Gunnar Ólason, Jóhann Bachmann og Björn Daði Björnsson, fyrir frábæra spilamennsku á Ballinu. Ingunn Guðmundsdóttir í Pylsuvagninum, Guðnabakarí og Krás Kjötvinnsla fá einnig þakkir og allir þeir sem að undirbúningnum komu.

Guðjónsdagurinn er svo sannarlega kominn til að vera og er undirbúningur fyrir næsta ár þegar hafinn. Næsti Guðjónsdagurinn verður 1. febrúar 2014 en þá verður mótið haldið í 5. skipti. Sjáumst þá hress og kát. En þangað til.

Bestu kveðjur og þúsund þakkir til allra
Sævar Þór Gíslason mótsstjóri.