Þjálfararáðstefna í Árborg

Selfoss_merki_nytt
Selfoss_merki_nytt

Þjálfararáðstefna Sveitarfélagsins Árborgar og Umf. Selfoss verður 11.-12. október en þema ráðstefnunnar er samvinna – liðsheild – árangur.

Dagskrá þjálfararáðstefnunnar.

Ráðstefnan er tvískipt þar sem föstudagurinn er stílaður inn á þjálfara sem starfa í Sveitarfélaginu Árborg. Laugardagurinn er hins vegar opinn öllum þjálfurum, stjórnarmönnum og áhugafólki um þjálfun. Viljum við sérstaklega hvetja alla félaga okkar víðsvegar af Suðurlandi til að fjölmenna á ráðstefnuna sem vonandi verður árviss viðburður.

Á föstudeginum eru sérstaklega skoðaðir samstarfsmöguleikar við stofnanir og aðra aðila sem vinna með börnum og unglingum í sveitarfélaginu og hvernig er hægt að vinna markvisst saman með hag unga fólksins að leiðarljósi. Páll Ólafsson frá Barnaverndarstofu mun flytja erindi og að lokum verður farið í öflugt hópefli.

 

Á laugardeginum er sjónum í ríkara mæli beint að þjálfunartengdum málefnum með erindum frá fjölbreyttum hópi virtra fyrirlesara.

  • Gunnar Páll Jóakimsson þjálfari Anítu Hinriksdóttur hlaupara fjallar um Unglingaþjálfun, frá grunnþjálfun til afreksþjálfunar.
  • Sigurður Ragnar Eyjólfsson, fyrrverandi landsliðsþjálfari íslenska kvennalandsliðsins í knattspyrnu fjallar um Hvað þarf til að ná árangri?
  • Hrafnhildur Ósk Skúladóttir, fyrirliði íslenska kvennalandsliðsins í handknattleik talar um Liðsheild og árangur.
  • Viðar Halldórsson, íþróttafélagsfræðingur ræðir um Árangur í íþróttum... og þáttur hins félagslega umhverfis.

Ráðstefnugjald fyrir laugardaginn er kr. 4.500 og greiðist við mætingu. Nánari upplýsingar og skráning sendist á netfangið umfs@umfs.is.

 

 

Þrátt fyrir að föstudagurinn sé settur upp fyrir þjálfara í Árborg er ekki lokað á að fleiri geti mætt þar. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband við Gissur Jónsson framkvæmdastjóra Umf. Selfoss í síma 894-5070 eða umfs@umfs.is.

 

Hlökkum til að sjá ykkur á Þjálfararáðstefnu í Árborg,