Kristján Kári er í miklum ham þessa dagana
81.Vormót ÍR var haldið á ÍR vellinum í Reykjavík þann 5.júní síðastliðinn. Nokkrir keppendur frjálsíþróttadeildar tóku þátt og stóðu sig vel.
Kristján Kári Ólafsson hélt áfram að bæta sig en hann bætti sig í öllum þremur kastgreinunum sem hann tók þátt í. Í sleggjukasti í karlaflokki kastaði hann 38,36m og bætti eigið HSK met í flokki 16-17 ára frá því í maí um 1,56m og vann til silfurverðlauna. Hann sigraði í aldursflokknum 16-17 ára í kringlukasti er hann rauf 40m múrinn með 40,01m löngu kasti og hann náði öðru sæti í kúluvarpi í sama aldursflokki með 12,97m kasti. Daníel Breki Elvarsson sigraði í spjótkasti karla með 45,83m kasti og Bryndis Embla Einarsdóttir náði öðru sæti í spjótkasti kvenna með 36,64m löngu kasti. Þorvaldur Gauti Hafsteinsson kom annar í mark í 800m hlaupi karla á tímanum 2:03,21 mín og Ísold Assa Guðmundsdóttir varð þriðja í kringlukasti í kvennaflokki með 25,92m.