Ísold Assa Íslandsmeistari í sjöþraut

Ísold Assa í langstökkskeppni sjöþrautarinnar
Ísold Assa í langstökkskeppni sjöþrautarinnar

Ísold Assa Guðmundsdóttir, Umf. Selfoss, tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn í sjöþraut í flokki 16-17 ára stúlkna á Meistaramóti Íslands í fjölþrautum sem haldið var á Akureyri um síðustu helgi.

Ísold Assa stóð sig frábærlega  í þrautinni og hlaut 3.156 stig sem er góð bæting hjá henni. Hún vann sex af sjö keppnisgreinum sjöþrautarinnar  og bætti sinn besta árangur bæði  í kúluvarpi, þar sem hún kastaði 11,50 m og í 100 m grindahlaupi, sem hún hljóp á 18,67 sek.