Æfingatöflur deilda

Þorsteinn Rúnar framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar, Örn Þrastarson Mfl. þjálfari karla í handbolta og Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari knattspyrnudeildar sitja yfir töflugerð.
Þorsteinn Rúnar framkvæmdastjóri handknattleiksdeildar, Örn Þrastarson Mfl. þjálfari karla í handbolta og Gunnar Borgþórsson yfirþjálfari knattspyrnudeildar sitja yfir töflugerð.

Æfingatöflur deilda fyrir haustið og veturinn eru að birtast á þessum dögum á heimasíðunni og á fésbókum deildanna.

Síðustu vikur hafa farið fram fundir á milli deilda til þess að reyna að koma í veg fyrir að æfingatímar skarist, enda er það stefna félagsins að okkar yngstu iðkendur geti æft fleiri en eina íþrótt. Þjálfarar félagsins eiga að styðja við það og æfingatímar eiga ekki allir að skarast á.

Það er þó ekki alltaf auðleysanlegt sökum aðstöðuleysis en okkar flotta starfsfólk gerir svo sannarlega sitt besta!

Áfram Selfoss!