Einar Gíslason úr Píludeild Umf. Selfoss vann sjöundu umferð Kristalsdeildarinnar í pílu þegar hann lagði Jón Bjarma Sigurðsson úr PFR 6–4 í úrslitaleik. Kristalsdeildin er efsta deild Íslenska Pílukastsambandsins og var kastmeðaltal Einars 74,48 yfir leikina átta sem hann lék.
Einar tapaði aðeins einum leik í riðlakeppninni og varð annar í sínum riðli. Í átta manna úrslitum vann hann ríkjandi úrvalsdeildarmeistara, Alexander Veigar Þorvaldsson, 4–1.
Í undanúrslitum beið Íslandsmeistarinn Hörður Þór Guðjónsson. Einar vann þann leik 5–1 og innsiglaði sigurinn með því að taka út 144 stig. Úrslitaleikurinn gegn Jóni Bjarma var spennandi framan af en Einar náði yfirhöndinni þegar á leið og tryggði sér sigur í umferðinni.
Einar byrjaði að æfa með Pílufélagi Selfoss fyrir örfáum árum og hefur á þeim tíma skipað sér í hóp fremstu pílukastara landsins. Umf. Selfoss óskar Einari innilega til hamingju með sigurinn!