Pólsku handknattleikskonurnar Malgorzata Trawczynska og Andzelika Petroll hafa samið við Umf. Selfoss.
Malgorzata er 29 ára gömul örvhent hægri skytta sem leikið hefur með Pólsku liðunum Zagłębie Lubin, Piotrcovia og JKS Jarosław. Þá hefur Malgorzata einnig spilað í Ungverjalandi við góðan orðstýr með liðunum DKKA og Alba Fehérvár.
Andzelika er 25 ára gamall línumaður sem leikið hefur með SPR Gdynia og Szczypiorno Kalisz í Póllandi
Báðar komu þær til Íslands fyrir um viku síðan og hafa æft með liðinu frá komu. Það verður spennandi að fylgjast með þeim í næsta leik hjá stelpunum gegn Fram þann 1. Október.