Markamet!

Enginn leikmaður hefur skorað fleiri mörk en Viðar Örn Kjartansson hefur gert á einu tímabili fyrir Selfoss.

Hann bætti markametið þegar hann skoraði sitt annað mark af fimm gegn Fjölni í gær en hann var kominn með þrennu í fyrri hálfleik.

Viðar hefur þá skorað 29 mörk í deild og bikar á þessu tímabili sem er ótrúlegur fjöldi marka.
 
Heimasíðan óskar Viðari innilega til hamingju með frábæran árangur og vitum að hann á nóg eftir ;)