Þórdís og Ófeigur hlutu silfurmerki Íþróttasambands fatlaðra

Ófeigur og Þórdís með silfurmerkin ásamt Lindu Kristinsdóttur ritara ÍF
Ófeigur og Þórdís með silfurmerkin ásamt Lindu Kristinsdóttur ritara ÍF

Þórdís Bjarnadóttir og Ófeigur Ágúst Leifsson voru sæmd silfurmerki Íþróttasambands fatlaðra fyrir framlag sitt til íþrótta fatlaðra á Suðurlandi. Þau tóku við viðurkenningunni á lokahófi Íslandsmótsins í boccia á Selfossi sunnudaginn 1. nóvember. Mótið var haldið í tilefni af 40 ára afmæli Suðra.

Þau Þórdís og Ófeigur hafa um árabil verið í hópi þeirra sem halda starfi Suðra gangandi, jafnt á æfingum sem á bak við tjöldin. Þórdís var formaður Suðra frá 2011 til 2016 og hefur einnig gegnt störfum ritara og gjaldkera. Ófeigur er formaður Selfoss-Suðra og hefur sjálfur þjálfað iðkendur deildarinnar í boccia. Á Íslandsmótinu á heimavelli stigu fjórir keppendur deildarinnar á verðlaunapall.

Umf. Selfoss óskar Þórdísi og Ófeigi innilega til hamingju með silfurmerkin.