Vallastjórinn okkar sæmdur silfurmerki KSÍ

Þorsteinn Haukur Harðarson (t.h.) stjórnarmaður í knattspyrnudeild Selfoss, afhenti Sveinbirni silfurmerkið. Ljósmynd/Selfoss fótbolti
Þorsteinn Haukur Harðarson (t.h.) stjórnarmaður í knattspyrnudeild Selfoss, afhenti Sveinbirni silfurmerkið. Ljósmynd/Selfoss fótbolti

Sveinbjörn Másson, vallastjórinn okkar á Selfossvelli, var sæmdur silfurmerki Knattspyrnusambands Íslands á lokahófi knattspyrnudeildar Selfoss á dögunum.

Við hjá Umf. Selfoss erum stolt af vallastjóranum okkar. Vallarsvæðið á Selfossi hefur vaxið mikið á hans vakt og er í dag bænum til sóma. Þar njóta iðkendur okkar, sjálfboðaliðar og gestir góðs af dugnaði Sveinbjarnar og starfsfólki vallarsvæðisins.

Sveinbjörn þekkir félagið frá mörgum hliðum. Hann æfði sjálfur fótbolta með Selfossi og kom síðar að starfinu sem foreldri og sjálfboðaliði. Í barna- og unglingaráði átti hann stóran þátt í að koma Olísmótinu á laggirnar. Mótið var haldið í 21. sinn í ár og hefur lengi verið ein helsta tekjulind knattspyrnudeildar. Þá hefur hann verið einn af burðarásunum í flugeldasölu deildarinnar frá áramótunum 2005–2006.

Sveinbjörn var framkvæmdastjóri knattspyrnudeildarinnar frá október 2007 til mars 2022. Á þeim árum léku bæði karla- og kvennalið Selfoss í efstu deild í fyrsta sinn og kvennaliðið varð bikarmeistari. Hann hefur einnig gegnt trúnaðarstörfum fyrir KSÍ, meðal annars í mótanefnd sambandsins.

Umf. Selfoss óskar Sveinbirni innilega til hamingju með silfurmerkið. Takk fyrir allt sem þú hefur gert fyrir félagið okkar og heldur áfram að gera á Selfossvelli.