Málþing um íþróttadómara

Málþing um íþróttadómara
Í E-sal Íþróttamiðstöðvarinnar í Laugardal miðvikudaginn 21. mars 2012 kl. 17.00-20.00.

ÍSÍ, KSÍ, HSÍ, KKÍ og BLÍ boða til málþings um íþróttadómara og þeirra mikilvægu störf í tengslum við íþróttirnar. Fulltrúar sérsambandanna munu fjalla um stöðu mála og framtíðarhorfur. Málþingið er öllum opið, endurgjaldslaust á meðan húsrúm leyfir. Allir sem áhuga hafa á þessum málum eru hvattir til að mæta, fræðast um stöðuna og leggja jafnvel orð í belg um málefnið.

Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?
Hver er áhrifamáttur og ábyrgð þjálfara og fjölmiðla?
Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi?
Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?
Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?

Þessum spurningum verður reynt að svara á málþinginu, m.a. í vinnuhópum þar sem allir hafa möguleika á þátttöku.
Niðurstöður hópavinnunnar verða birtar eftir að hópavinnu lýkur.
Forystumenn þessa málaflokks hjá ofangreindum sérsamböndum verða í panel í lok málþingsins.

Skráning er í síma 514-4000 eða á linda@isi.is  Í boði verður kaffi og léttar veitingar.
Allar frekari uppl. gefur sviðsstjóri Þróunar- og fræðslusviðs ÍSÍ í síma 460-1467 eða á vidar@isi.is

Dagskrá málþingsins
17.00  Ávarp/setning
17.05  Sameiginlegir þættir
17.15  Fulltrúar íþróttagreinanna - kynning
17.40  Skilgreining hópavinnu 
17.45  Hópavinna   
A)  Hvernig geta íþróttagreinar unnið betur saman í dómaramálum?
B)  Hver er áhrifamáttur og ábyrgð
     a) Þjálfara?
     b) Fjölmiðla?
C)  Hvernig fjölgum við dómurum og höldum þeim í starfi (hindrum brottfall)?
D)  Yfir hvaða eiginleikum þarf íþróttadómari að búa yfir?
E)  Hvernig fjölgum við konum í dómarastétt?
18.45  Kaffihlé
18.55  Niðurstöður hópavinnu
19.25  Fyrirspurnir og umræður - (Panell)
19.50  Samantekt 
20.00  Málþingslok