Nökkvi áfram hjá Selfoss

Nökkvi Dan - maí 2020
Nökkvi Dan - maí 2020

Eyjamaðurinn Nökkvi Dan Elliðason hefur framlengt samning sinn við handknattleiksdeild Selfoss.  Nökkvi, sem er 22 ára gamall, kom til liðsins í byrjun árs 2019 og var lykilmaður í Íslandsmeistaraliði Selfoss það ár.  Hann hefur glímt við meiðsli á nýliðnu tímabili og hefur þar af leiðandi ekki náð að sína sitt rétta andlit, hann var að ná vopnum sínum að ný þegar tímabilið var blásið af.  Handknattleiksdeildin fagnar því að Nökkvi skuli halda áfram hjá Selfoss og verður gaman að fá að fylgjast aftur með þessum gleðigjafa á næsta tímabili.


Mynd: Umf. Selfoss / ÁÞG