Aðalfundur handknattleiksdeildar

Ný stjórn handknattleiksdeildar frá vinstri, Davíð Lúther, Guðfinna, Þórir, Einar Sindri, Ólafur, At…
Ný stjórn handknattleiksdeildar frá vinstri, Davíð Lúther, Guðfinna, Þórir, Einar Sindri, Ólafur, Atli, Hjörtur Leó og Sandra Dís. Á myndina vantar Anton Inga, Andra Hrafn, Árna Geir og Bryndísi Ósk.

Aðalfundur Handknattleiksdeildar Umf.Selfoss, var haldinn 22.mars sl. Auk venjulegra aðalfundarstarfa, var farið yfir starf síðasta árs og áherslur á líðandi ári. Fjölmennt var á fundinum. Nokkrir aðilar gengu úr stjórn og er þeim þakkað kærlega fyrir þeirra framlag. Ný stjórn var kosin á fundinum, en í stjórn voru kosin:

Þórir Haraldsson formaður

Anton Ingi Arnarsson gjaldkeri

Einar Sindri Ólafsson ritari

Árni Geir Hilmarsson meðstjórnandi

Bryndís Ósk Sævarsdóttir meðstjórnandi

Davíð Lúther Sigurðarson meðstjórnandi

Ólafur Einarsson meðstjórnandi

Andri Hrafn Hallsson varastjórn

Atli Kristinsson varastjórn

Guðfinna Tryggvadóttir varastjórn

Hjörtur Leó Guðjónsson varastjórn

Sandra Dís Hafþórsdóttir varastjórn