5. Flokkur Kvenna stórkostlegar í Eyjum.

Lið Selfoss í 5. flokki kvenna gerði stórkostlega ferð til Vestmannaeyja um liðna helgi og endaði í öðru sæti af 116 liðum sem er vægast sagt frábær árangur!
Á leið sinni í úrslitaleikinn unnu stelpurnar alla 9 leiki sína með samanlagða markatölu 26-5 og lutu í lægra haldi fyrir Breiðablik í úrslitaleiknum. 

Hildur Eva Bragadóttir var að lokum valin í liðmótsins ásamt því að taka þátt landsleik TM mótsins.

Stelpurnar sýndu gríðarlegan karakter á mótinu og allir Selfyssingar geta verið stoltir af þessum leikmönnum framtíðarinnar sem eiga klárlega eftir að sjást í meistaraflokki áður en langt um líður.