Þann 10. október síðastliðinn var gengið frá ráðningu Gunnars Guðmundssonar sem þjálfara meistaraflokks karla. Tekur hann við starfi Loga Ólafssonar sem færði sig yfir til Stjörnunnar. Gunnar hefur undanfarin 4 ár þjálfað u17 ára landslið Íslands með góðum árangri. Árin 2004–2008 þjálfaði hann HK sem þá spilaði m.a. tvö ár í efstu deild. Knattspyrnudeild Umf. Selfoss gerði þriggja ára samning við Gunnar.
ÖG