Nýr hópleikur Selfoss getrauna hefst laugardaginn 17. febrúar. Hægt er að skrá sig til leiks í félagsheimilinu Tíbrá, Engjavegi 50, þar sem við erum með opið hús kl. 11:00-13:00 alla laugardaga í vetur.
Frábærir vinningar m.a gisting á hóteli og út að borða á veitingastað, ásamt risastórum fyrsta vinning; 2 X 50.000kr gjafabréf með Vita ferðum!
Selfoss - Getraunir eru á fésbókinni.
Eflum félagsandann og mætum í félagsheimili Umf. Selfoss í Tíbrá á laugardagsmorgnum. Þar er heitt á könnunni og bakkelsi á boðstólum frá Guðna bakara. Allir hjartanlega velkomnir.