Selfoss sigraði Hugin/Hött/Leikni F. 3-0 í gær í leik um 7. sætið í B-deild Fótbolta.net mótsins. Leikið var á Selfossi en heimamenn voru 2-0 yfir í leikhléi.
Það var varnarmaðurinn Andy Pew sem skoraði fyrsta mark leiksins og síðan skoraði Spánverjinn Pachu tvö mörk fyrir Selfyssinga en hann er á reynslu hjá liðinu þessa dagana.
Sjá nánar á Fótbolta.net.
---
Andy skoraði í gær en fyrir tveimur árum lyfti hann bikar í sama móti.