Leikurinn á móti Fylki byrjaði ekki vel hjá okkar konum þar sem leikmaður Fylkis komst inn fyrir vörnina og skoraði mark sem dæmt var af vegna rangstöðu. Á 38 mínútu fékk Guðný Geirsdóttir, markmaðurinn okkar, rautt spjald eftir misheppnað úthlaup. Stelpurnar vöknuðu þá til lífsins og var leikurinn mjög jafn eftir það, sem endaði með markalausu jafntefli.
Nánar er fjallað um leikinn á vef Sunnlenska.is
Liðið uppskar því eitt stig og er enn á toppnum með 13 stig.