Á sunnudag fer fram á JÁVERK-vellinum seinasti heimaleikur sumarsins hjá kvennaliði Selfoss sem er í dauðafæri á sæti í Pepsi-deildinni að ári. Mótherjar liðsins eru Hamrarnir frá Akureyri.
Það verður frítt á völlinn og grillaðar pylsur í boði Sjóvá. Mætum með fjölskylduna og vini okkar á völlinn og stöndum saman í lokabaráttunni.
Hlökkum til að sjá ykkur á vellinum!