Kristinn Rúnar Jónsson, landsliðsþjálfari U19 landsliðs karla, valdi Selfyssinginn Svavar Berg Jóhannsson í landslið Íslands sem leikur tvo vináttulandsleiki gegn Skotum 3. og 5. september nk.
Glæsilegur árangur hjá Svavari sem hefur tekið miklum framförum með liði Selfoss í sumar.