Selfoss hefur fengið Þorstein Aron Antonsson á láni frá enska félaginu Fulham út júní mánuð.
Þorsteinn er Selfyssingum vel kunnugur en á að baki 30 meistaraflokks leiki fyrir Selfoss og lék hann síðast með liðinu síðasta sumar. Þorsteinn lék einnig stóran þátt í liði Selfoss sem komst upp úr 2. deild sumarið 2020.
Þorsteinn er því með leikheimild þegar Selfoss mætir Aftureldingu í fyrsta leik tímabilsins á föstudagskvöld klukkan 19:15 á JÁVERK-vellinum.