Einar Baldvin til Selfoss

EBB 16-9
EBB 16-9

Markmaðurinn efnilegi Einar Baldvin Baldvinsson hefur skrifað undir eins árs lánssamning við handknattleiksdeild Selfoss.

Einar Baldvin kemur til okkar frá Val þar sem hann hefur leikið með meistaraflokki síðustu tvö ár.  Hann gekki í raðir Valsmanna vorið 2017 frá Víking þar sem hann hóf meistaraflokksferil sinn.  Þá hefur hann leikið með yngri landsliðum Íslands, enda einn efnilegasti markmaðaður landsins.

Handknattleiksdeild Selfoss býður Einar Baldvin hjartanlega velkominn og hlakkar til að sjá hann vaxa og dafna sem leikmann.


Mynd: Einar Baldvin ásamt Þóri Haraldssyni formanni deildarinnar
Umf. Selfoss / ÁÞG