Eva María stökk 1.75m í hástökki á Vormóti UMSB

eva maría
eva maría

Eva María Baldursdóttir, Umf. Selfossi, stórbætti sig í hástökki á Vormóti UMSB sem fram fór í Borgarnesi 2.júní. Eva María sem er 16 ára gömul sigraði hástökkið með því að stökkva yfir 1.75m og bæta sig um 4 cm. Hún setti í leiðinni HSK met í þremur  flokkum, 16-17 ára, 18-19 ára og 20-22 ára. Stökkið er besta afrek íslenskrar konu sumarið 2019 og er 9.besta stökk íslenskrar konu frá upphafi i hástökki. Stökkið skipar henni í 19.-23.sæti í hástökki á heimslista 17 ára og yngri sumarið 2019. Frábær byrjun á sumrinu hjá þessari efnilegu íþróttakonu og spennandi að fylgjast með henni á næstu mótum. Þess má geta að Evu Maríu vantar einungis að bæta sig um 1cm til að ná lágmarki á Bauhaus junioren gala sem er fyrir 16-19 ára keppendur.  

Ásrún Aldís Hreinsdóttir, Umf. Selfoss, keppti í kúluvarpi á sama móti  og sigraði í flokki 15 ára með því að kasta kúlunni 10.65m og bæta sig um rúman metra. Frábær árangur hjá henni og draumabyrjun á keppnistímabilinu.