Ísland í 5. sæti á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar

u17
u17

U-17 ára landslið Íslands lauk leik á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í Azerbaijan í dag þegar þeir sigruðu Slóveníu í leik um 5. sætið 24-17.  En þetta er besti árangur Íslands á Ólympíuhátíð Evrópuæskunnar í handbolta frá upphafi.

Mótið hófst hjá Íslenska liðinu á mánudag þegar liðið mætti Frakklandi.  Sá leikur endaði með íslenskum sigri í miklum markaleik 37-31.  Liðið gerði því næst svekkjandi jafntefli við Slóvena eftir að hafa verið með frumkvæðið allan leikinn.  Á miðvikudag var því úrslitaleikur við Króatíu um að komast í undanúrslit.  Hann tapaðist og því ljóst að strákarnir færu ekki í undanúrslitin heldur myndu þeir leika við heimamenn um hvort liðið myndi leika um fimmta eða sjönuda sæti.  Sá leikur var á föstudag og endaði með íslenskum sigri 48-11.

Selfoss mætti því Slóveníu öðru sinni í mótinu í dag í leik um 5. sætið.  Það var mikið um góðar varnir á báða bóga og lítill munur vel fram í seinni hálfleik.  Í seinni hálfleik náði Ísland frumkvæðinu og um miðjan hálfleikinn sigldu okkar menn framúr og héldu þeirri forystu til leiksloka.

Í heildina frábær árangur hjá íslenska liðinu og fulltrúar okkar Selfyssinga öflugir sem fyrri daginn, Ísak, Reynir Freyr og Tryggvi mega vera sáttir með sumarið.


Mynd: Tryggvi, Ísak og Reynir Freyr að vonum sáttir með 5. sætið.
Umf. Selfoss / ÞH