Selfyssingar glímdu í Skotlandi

Júdó - Opna skoska Breki, Hrafn, Jakub og Egill
Júdó - Opna skoska Breki, Hrafn, Jakub og Egill

Selfyssingarnir Breki Bernhardsson, Hrafn Arnarsson og Jakub Oskar Tomczyk kepptu á Opna skoska meistaramótinu sem var haldið 18. janúar sl. til að afla punkta og komast ofar í landsliðinu. Þjálfari í ferðinni var Egill Blöndal en hann keppti ekki að þessu sinni þar sem hann er að jafna sig af meiðslum.

Hrafn átti bestu gengi að fagna af þeim félögum en hann keppti í -90 kg flokki bæði í U21 og í opnum flokki. Í U21 árs flokki hafnaði Hrafn í fimmta sæti af þrettán keppendum en hann sigraði tvær viðureignir af fjórum. Í opnum flokki varð Hrafn í sjöunda sæti af sextán keppendum og vann þar einnig tvær viðureignir og tapaði tveimur.

Breki keppti í -73 kg flokki karla og endaði í níunda sæti. Sat hann hjá í fyrstu umferð og sigraði í annarri en varð að játa sig sigraðan í næstu tveimur viðureignum.

Jakub keppti upp fyrir sig í -66 kg flokki bæði í U21 árs og opnum flokki en hann er aðeins 16 ára. Því miður tapaði hann öllum sínum viðureignum að þessu sinni.

Það eru næg verkefni hjá þeim um þessar mundir. Þeir kepptu á RIG um helgina og fram undan er m.a. keppni á Opna danska og Norðurlandamótinu sem verður haldið á Íslandi í vor.

eb

---

Selfyssingarnir í Skotlandi f.v. Jakub Oskar, Hrafn, Egill og Breki.
Ljósmynd: Umf. Selfoss