Selfyssingar í eldlínunni með landsliðinu

Landslið Selfoss
Landslið Selfoss

Það er í nógu að snúast hjá Selfyssku landsliðsfólki í handbolta eins og svo oft áður. Sex Selfyssingar léku með A-landsliði karla um helgina í Gulldeildinni, æfingamóti sem haldið var í Noregi. Liðið spilaði gegn Norðmönnum, Dönum og Frökkum en tapaði öllum sínum leikjum naumlega. Þeir Haukur Þrastarson, Ragnar Jóhannsson, Bjarki Már Elísson, Elvar Örn Jónsson, Ómar Ingi Magnússon og Teitur Örn Einarsson voru allir í landsliðshópnum ásamt því að Jón Birgir Guðmundsson er sjúkraþjálfari liðsins. Þriðjungur leikmannahópsins var því uppaldir Selfyssingar!

 

Noregur 31-29 Ísland (Ómar 4, Haukur 3, Ragnar 2, Elvar 2)
Ísland 28-31 Danmörk (Ómar 4, Haukur 2, Ragnar 1)
Ísland 26-28 Frakkland (Elvar 7 og var valinn maður leiksins hjá Íslandi, Ómar 4, Bjarki 3)

B-landslið Íslands vann til silfurverðlauna á fjögurra liða móti í Houten í Hollandi sem einnig fór fram um helgina. Einar Sverrisson var í landsliðshópnum, sem sigraði tvo leiki og tapaði tveimur, þ.m.t. úrslitaleik gegn Hollendingum, 24-26. Einar skoraði 7 mörk á mótinu og stóð sig með prýði. Einar Guðmundsson stýrir liðinu.

Holland 38-36 Ísland 
Holland B 25-28 Ísland 
Ísland 39-38 Japan 
Úrslit: Holland 24-26 Ísland


Mynd: Haukur Þrastarson, Ragnar Jóhannsson, Bjarki Már Elísson, Elvar Örn Jónsson, Ómar Ingi Magnússon og Teitur Örn Einarsson með A-landsliði Íslands.