Sundnámskeiðin verða í ágúst

Sundnámskeið í júní 021
Sundnámskeið í júní 021

Sumarnámskeið Sunddeildar Selfoss verði í ágúst.

Vegna viðgerða á innilauginni í Sundhöll Selfoss verða fyrirhuguð sundnámskeið á vegum Sunddeildar Umf. Selfoss ekki fyrr en á águst þetta árið.  Nákvæm tímasetning er ekki komin en þau verða annað hvort í viku 32 eða 33 (á tímabilinu 5 til 11. ágúst) og þeim verður lokið áður en skólar hefjast.

Skráning fer fram hjá Guðbjörgu H. Bjarnadóttur á netfangið guggahb@simnet.is og í s: 848-1626. Í skráningu þarf að koma fram fullt nafn barns og fæðingardagur. Nafn foreldris, farsímanúmer og tölvupóstfang. Einnig upplýsingar um hvort barnið er óhrætt og öruggt með sig í vatni og geti fleytt sér kútlaust eða hvort barnið er óöruggt og kafar ekki/lítið.

Námskeiðið fer fram í innilaug sundhallar Selfoss. Námskeiðsgjaldið er 11.500 kr. (fyrir 9 tíma) en ef annað systkini kemur líka greiðir seinna barnið 10.000 kr.

Kennt verður fyrir hádegi einu sinni á dag alla virka daga í níu skipti. Námskeiðin eru fyrir börn fædd 2009 og eldri. Börnin koma ofan í laugina án foreldra (nema ástæða sé til annars). Sérstök athygli er vakin á að það er hópur í boði fyrir börn sem eru byrjuð í skóla og vilja/þurfa að bæta sundkunnáttuna.

Á námskeiðinu er áherslan á að börnin verði örugg með sig, njóti sín í vatninu og geti náð undirstöðunni í sundi.

Kennari á námskeiðinu verður Guðbjörg H. Bjarnadóttir íþróttakennari sem kennt hefur sund í fjölda ára.