Meistaraflokkur karla í knattspyrnu tryggði sér í gær sæti í Lengjudeildinni árið 2027 með 2–1 sigri á KFG á JÁVERK-vellinum.
Selfoss endaði í 2. sæti deildarinnar með 45 stig eftir 22 leiki. Liðið vann 13 leiki, gerði sex jafntefli og tapaði aðeins þremur. Selfoss skoraði 55 mörk og fékk á sig 36. Liðið fylgir Haukum upp í Lengjudeildina.
Heimasíðan óskar leikmönnum, þjálfurum, stjórn knattspyrnudeildar, sjálfboðaliðum og öllum Selfyssingum innilega til hamingju með frábæran árangur!